Er Reykjavík í molum og Hafnarfjörður í toppstandi?

Þegar fjallað er um fjármál sveitarfélaga er Reykjavíkurborg yfirleitt í efsta sætinu í umfjöllun fjölmiðla. Í fyrirsögnum eru lykilstærðir í fjármálum borgarinnar oft settar fram sem krónutölur, t.d. upplýsingar um rekstrarniðurstöðu, hækkun skulda o.s.frv. Þar sem að Reykjavíkurborg er langstærsta sveitarfélag landsins, hvar rúmlega þriðjungur landsmanna býr, þá eru lykilstærðirnar í krónum að sjálfsögðu alltaf mjög stórar i augum almennings og virka því gjarnan sem æsifréttir. Þó svo að tölurnar séu réttar, þá skiptir máli hvernig þær eru settar fram sem áreiðanlegar upplýsingar, þannig að þær dragi ekki upp ranga mynd af stöðu mála.
Þar hefur flokkspólitíski fjölmiðilinn Morgunblaðið auðvitað verið í lykilhlutverki og unnið markvisst að því að telja landsmönnum trú um að rekstur borgarinnar sé í molum og í mun verri stöðu en annarra sveitarfélaga. Þetta hefur pólitíkin líka verið dugleg í að reyna að sannfæra fólkið um. Til dæmis var fyrrum meirihluti í Hafnarfirði stöðugt að reyna að sannfæra íbúana í bænum um að rekstur bæjarins væri í sterkri stöðu, sjálfbær og í mjög góðu jafnvægi. Oft á tíðum voru sömu aðilar að halda því fram að rekstur borgarinnar væri í vondum málum og þar þyrfti að ráðast í róttækar aðgerðir.
Þegar upplýsingarnar eru skoðaðar er raunveruleikinn allt annar og þvert á það sem pólitíkin hefur verið að reyna að telja fólkinu trú um. Sem dæmi eru nýlegar fréttir um niðurstöður árshlutauppgjörs Reykjavíkurborgar. Í pólitískri fréttatilkynningu var heildarmyndin ekki dregin upp, heldur voru neikvæðu krónutölurnar í forgrunni og lítið sem ekkert fjallað um þær lykilstærðir sem segja borgarbúum hver hin raunverulega staða er. Þó svo að rekstrarniðurstaðan hafi verið neikvæð, fyrst og fremst vegna ytri þátta, m.a. vegna verðbólgu, þá er grunnrekstur Reykjavíkurborgar í mun betri stöðu en margra annarra sveitarfélaga, m.a. Hafnarfjarðarbæjar.
Sem dæmi var rekstrarniðurstaða A-hluta Hafnarfjarðarbæjar neikvæð um tæplega 2,4 milljarða króna á fyrri helmingi þessa árs borið saman við 3,2 milljarða hjá Reykjavíkurborg. Í því samhengi ber að hafa í huga að Reykjavíkurborg er rúmlega 140 þúsund manna sveitarfélag borið saman við tæplega 33 þúsund íbúa í Hafnarfirði. Sem hlutfall af rekstrartekjum A-hluta Hafnarfjarðarbæjar reyndist neikvæð rekstrarniðurstaða vera um 9,7% borið saman við 2,9% hjá Reykjavíkurborg.
Sé ætlunin að leggja mat á fjárhagslega stöðu sveitarfélaga er hins vegar aldrei hægt að horfa á eina stærð án samhengis við aðrar, t.d. skuldir og/eða skuldahlutföll, rekstrarniðurstöðu o.s.frv. Það hvort skuldir teljast lágar eða háar snýst ekki um krónutölur, heldur fyrst og síðast um hvort greiðandinn býr yfir bolmagni til að standa undir niðurgreiðslu skuldanna og einnig og ekki síður fjárfestingarþörfinni. Því er aldrei nóg að horfa eingöngu á skuldahlutföll, heldur þarf ávallt að setja þau í samhengi við aðrar lykilstærðir, m.a. veltufé frá rekstri.
Veltufé frá rekstri segir til um hversu mikilli fjármunamyndun reksturinn skilar, þ.e. hversu miklu framlagi reksturinn skilar til afborgana skulda og nýfjárfestinga. Ef veltufé er stöðugt í lágmarki og jafnvel neikvætt, þá þýðir það takmarkaða getu sveitarfélagsins til að standa undir niðurgreiðslu skulda og fjármagna nauðsynlega innviði, t.d. byggingu og viðhald skólamannvirkja. Sem segir að sveitarfélagið er ekki fjárhagslega sjálfbært.
Öfugt við það sem fráfarandi meirihluti reyndi að sannfæra bæjarbúa um þá hefur fjárhagur Hafnarfjarðarbæjar verið í veikri stöðu síðustu ár. Á síðustu árum hefur veltufé frá rekstri A-hluta Hafnarfjarðarbæjar verið í algjöru lágmarki og langt undir lágmarksviðmiðum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Niðurstöður árshlutauppgjörsins í Hafnarfirði koma því varla á óvart, þar sem veltufé frá rekstri nam um 0,2% af tekjum, borið saman við 7,9% hjá Reykjavíkurborg. Þrátt fyrir að grunnrekstur Hafnarfjarðarbæjar standi ekki undir afborgunum lána þá eru skuldir per íbúa hærri hjá Hafnarfjarðarbæ en hjá Reykjavíkurborg.
Tekjur af lóðasölu eða annarri eignasölu eru að sjálfsögðu ekki ætlaðar til að standa straum af rekstrarkostnaði sveitarfélaga, enda eru slíkar einskiptistekjur hugsaðar til fjárfestinga i innviðum sem tengjast vexti sveitarfélaganna. Í tilviki Hafnarfjarðarbæjar hafa slíkar tekjur hins vegar verið notaðar til að láta heildarafkomuna líta vel út á pappírnum og hafa þannig verið nýttar til að fjármagna rekstrarútgjöld í grunnrekstri bæjarins. Þegar lóðasalan minnkar eða jafnvel hverfur þá birtist óhjákvæmilega rétta myndin af fjárhagsstöðu bæjarins. Sem virðist vera orðin staðan í dag.
Í umfjöllun fjölmiðla um árshlutauppgjör sveitarfélaga hefur m.a. komið fram að neikvæð rekstrarniðurstaða skýrist að hluta í sumum tilfellum af lækkun tekna af lóðasölu. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var gert ráð fyrir að tekjur A-hluta af sölu byggingaréttar og innheimtu gatnagerðargjalda yrði um 3 milljarðar króna á fyrri helmingi ársins, borið saman við tæplega 2,9 milljarða hjá Hafnarfjarðarbæ. Sem hlutfall af áætluðum rekstrartekjum voru þessar tekjur af lóðasölu áætlaðar um 11% hjá Hafnarfjarðarbæ en 3% hjá Reykjavíkurborg. Þegar slíkar tekjur eru nýttar til fjármögnunar rekstrarútgjalda í stað nauðsynlegra fjárfestinga, þá er það í raun bara ígildi dulinnar lántöku, enda safnast þá upp innviðaskuld sem ekki birtist í efnahagsreikningi. Nú þegar tekjur af lóðasölu falla niður þá hefur bærinn þurft að ráðast í auknar lántökur og fjárfestingagetan er augljóslega orðin mjög takmörkuð.
Með nýjum meirihluta og breyttum og bættum áherslum mun staða Hafnarfjarðarbæjar vonandi breytast til betri vegar. En það verður að sjálfsögðu langt og flókið ferli, sem kallar á breiða og jákvæða samstöðu innan bæjarstjórnar og skýra og vandaða stefnumótun, sem miðar vonandi að því að því að setja grunnþjónustuna i forgang og tryggja langvarandi jafnvægi og sjálfbærni í rekstri bæjarins.
Það sama á auðvitað við um Reykjavíkurborg og öll önnur sveitarfélög. Þó svo að staðan sé að mörgu leyti betri í Reykjavík en Hafnarfirði og mörgum öðrum sveitarfélögum, þá er að sjálfsögðu hægt að gera betur og það er mjög mikilvægt að það sé alltaf á dagskrá. Stjórnmálin eiga auðvitað að reyna að vinna saman að því að bæta hag íbúanna og reyna að gera það í góðri samvinnu.
Svo þarf ríkisstjórnin að sjálfsögðu alltaf að horfa á heildarmyndina í fjármálum hins opinbera, þ.e. ekki bara hlut ríkisins. Þar eru stór og mikilvæg umbótamál sem gætu stuðlað að bættum stöðuleika í efnahagsmálum landsins og löggjafinn þarf að opna augun fyrir, m.a. löngu tímabærum og nauðsynlegum breytingum á tekjustofnakerfi íslenskra sveitarfélaga.


